Vopnað rán í hafnarfirði í morgun

 Snemma í morgun reyndu tveir men um tvítugt að ræna verslunina Iceland í Hafnarfirði vopnaðir hnífum. Ógnuðu þeir starfsfólki og hringdi öryggisvörður í neyðarlínuna.

Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu segir þá hafa verið handtekna klukkan hálf sex skammt frá versluninni og bíða þeir nú yfirheyrslu. Mbl greindi frá.