Vara við óprúttnum fjársvikurum – gmail hættulegt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi nú um hádegið frá sér tilkynningu þar sem varað er við fjársvikum sem felast í því að fyrirtæki óska eftir að stofna til reikningsviðskipta með úttektarheimild, símleiðis eða með tölvupósti. Vörur eru svo pantaðar og sóttar en reikningar ekki greiddir.

Við þessi fjársvik hafa óprúttnir aðilar notfært sér annað hvort fyrirtæki með gott lánshæfismat, sem þeir hafa nýverið tekið yfir, eða fyrirtæki sem þeir segjast eiga eða starfa fyrir, en koma ekki að með neinum hætti í raun.

Rekstraraðilar þurfi því að vera vakandi fyrir því og kanna hvort fyrirtæki sem vill komast í reikningsviðskipti hefur nýverið skipt um eigendur, framkvæmdastjóra, prókúruhafa eða stjórnarmenn.

Bent er á að ef til standi að heimila reikningsviðskipti sé það góð regla að hafa alltaf samband símleiðis við fyrirtæki í gegnum opinberlega skráð símanúmer þess en ekki það símanúmer sem gefið er upp í til dæmis tölvupósti.

Þá segir lögreglan beiðnir sem berast úr netfangi með Gmail-endingu en ekki með endingu sem vísi til nafns fyrirtækisins vera varhugaverðar. Einnig sé góð regla að afhenda ekki vörur til sendla á vegum fyrirtækja sem nýlega hafi stofnað til reikningsviðskipta og samskipti hafi einungis farið fram við með tölvupósti.