Loka laugardalslauginni og reikna með heitavatnsleysi: „við brýnum fyrir fólki að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur"

Á mánudaginn 11. nóvember næstkomandi má reikna með því að heitavatnsþrýstingur verði lágur í Vogahverfi, Laugarási og við Laugardal í Reykjavík. Þá má einnig reikna með því að heitavatnslaust verði þar sem byggð stendur hærra.

Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Veitna og er ástæðan sögð vera vegna tengingar hitaveitu.

Laugardalslaug verður einnig lokuð vegna vinnunnar og segir í tilkynningunni að reikna megi með því að lokunin hafi áhrif á þjónustu á svæðinu.

\"\"

Kort af svæðinu sem um ræðir

„Verið er að tengja nýja aðalæð hitaveitunnar við Elliðaárbrýr og flytur hún mestallt það vatn sem notað er í hverfinu. Til að minnka áhrifin á neytendur er vatni veitt inn í hverfin eftir öðrum leiðum. Þær eru þó ekki eins afkastamiklar og því má búast við lækkuðum þrýstingi og jafnvel heitavatnsleysi, einkum í þeim húsum sem hæst standa á Laugarásnum. Vinnan hefst með því að tæma lagnir á mánudagsmorgun klukkan 6:00 og vonast er til að hægt verði að hleypa á nýju lögnina klukkan 20:00 sama dag og það mun taka einhverja klukkutíma að ná upp fullu þrýstingi á kerfið,“ segir í tilkynningunni.

„Við brýnum fyrir fólki að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni. Þar sem heitavatnslaust verður er ráðlegt að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju.“

Segja þeir framkvæmdunum fylgja óhjákvæmileg óþægindi fyrir neytendur og biðjast þeir velvirðingar á því.