Jón gunnarsson nýr ritari sjálfstæðisflokksins

Jón Gunnarsson alþingismaður var rétt í þessu kjörinn nýr ritari Sjálfstæðisflokksins. Hann hlaut 52,9% atkvæða. Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður bæjarráðs Garðabæjar gaf einnig kost á sér og hlaut 45,88% atkvæða.

Aðrir hlutu færri atkvæði.