Jens Pétur Högnason fæddist í Reykjavík 7. september 1950. Hann lést 26. október 2019 á sínu öðru heimili í Fjárborgum Reykjavík. Sambýliskona Péturs er Friðbjörg Egilsdóttir, f. 23. mars 1955. Jens eignaðist fjögur börn en einnig tók Pétur börn Friðbjargar sér í föðurstað en þau eru þrjú. Jens Pétur var dýraþjálfari, áhættuleikari og bóndi.
Hann hefur aðstoðað við fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda svo sem Game of Thrones og þá lagði hann til hesta í Engla alheimsins og Myrkrahöfðingjann. Greint er frá andláti Jens Péturs í Morgunblaðinu í dag. Þá átti Jens Pétur nokkurn fjölda af kindum, en myndskeið af honum að smala á nokkuð óvenjulegan hátt má sjá neðst í umfjölluninni.
Pétur byrjaði ungur að stunda hestamennsku. Hann keppti í frjálsum fyrir hönd HSH og vann ötullega fyrir hönd ungmennafélags Grundarfjarðar á árum áður. Hann var stofnandi Hestamannafélags Grundarfjarðar og safnaði undirskriftum til að fá heimilislækni í sveitina.
Síðar flutti Pétur til Reykjavíkur þar sem Hestamannafélagið Fákur naut krafta hans við ýmis félagsstörf. Hann beitti sér að fullum þunga að hestamennskunni og við þjónustu hestamanna. Eins lét hann gamlan draum rætast þegar hann hóf fjárbúskap í Fjárborgum.
Hann lagði metnað í að eiga fallega meðfærilegra hesta sem hentuðu fyrir kvikmyndaiðnaðinn og meðal verkefna hans voru Myrkrahöfðinginn, Agnes, Englar alheimsins og Game of Thrones.
Í samtali við Fréttablaðið fyrir tveimur árum kom fram að hann hefði verið með hrossin sín fyrir framan tökuvélar í tuttugu ár. Ræddi Fréttablaðið við Jens Pétur í tilefni þátttöku hans og hestanna í Game of Thrones. Þá bjargaði samstarfið við kvikmyndaframleiðendurna lífi tveggja hesta sem stóð til að lóga en voru þess í stað nýttir í þáttunum. Í Fréttablaðinu sagði:
Tökulið bandarísku sjónvarpsþáttanna bjargaði meira að segja lífi tveggja hrossa því Jens hugðist lóga þeim áður en verkefnið kom inn á borð til hans. Þar á meðal hinum aldna höfðingja Randver sem er orðinn 28 vetra gamall. „En nú er ég bara að fara að járna hann og hann fær að draga vagn í þáttunum. Hann er öllu vanur, hefur verið í Borgarleikhúsinu og á Hótel Íslandi.“
Að sögn Jens Péturs er það mikið þolinmæðisverk að vera með hesta í kvikmyndum og það krefst þess að hestarnir séu með gott geðslag.
„Hver mínúta er dýr hjá svona tökuliði, það skiptir miklu máli að hestarnir hreyfi sig ekki þegar þeir eiga ekki að hreyfa sig,“ segir Jens. Og að sögn bóndans er ágætis peningur í boði fyrir svona starf. „En maður reynir auðvitað að vera sanngjarn á báða bóga.“
Ferill Jens Péturs í kvikmyndum:
Bjólfskviða, 2005 - Umsjón með dýrum
Ikíngut, 2000 - Umsjón með dýrum
Englar alheimsins, 2000 - Umsjón með dýrum
Myrkrahöfðinginn, 1999 - Umsjón með dýrum
Agnes, 1995 - Umsjón með dýrum
Myrkrahöfðinginn, 1999 – Aukahlutverk
Games of Thrones
Hross í oss
Árni Ingason, formaður Fjáreigendafélags Reykjavíkur skrifar um Jens Pétur:
„Fljótlega tók Jens Pétur að sér að dreifa heyi fyrir marga heysala og sinnti öllu höfuðborgarsvæðinu. Líklega kannast allir hesthúseigendur við hann því hann var lipur við viðskiptavinina, vakinn og sofinn á traktornum. Jens Pétur rak einnig fyrirtækið Bíóhesta og líkast til hafa fáar kvikmyndir með hestum verið gerðar án hans aðkomu, allt frá Myrkrahöfðingjanum, Game of Thrones yfir í Hross í oss til að nefna nokkrar. Hestur hans Randver kom fram í Línu Langsokk í Borgarleikhúsinu og hann kom einnig fram í nokkrum þessara mynda.
Jens Pétur var úrvals knapi og tamningamaður. Sagt var að ef hann væri kominn í hnakkinn þá sæti hann þar, sama hvernig hesturinn léti. Hann hugsaði vel um skepnurnar sínar og lést við gegningarnar sem voru hans yndi. Líklega hefur hann hvergi frekar viljað vera á þessari ögurstund en innan um dýrin sín.
Það verður tómlegt í Fjárborginni núna, þessi höfðingi er fallinn frá. Hann var áberandi og glettinn í fasi með blik í auga. Hann var mjög hugmyndaríkur og stórhuga. Þegar Jens Pétur var að lýsa fyrir okkur hvernig ætti að gera hlutina vitnaði hann óspart til þess er hann var formaður Hestamannafélagsins Snæfellings. Hann var frá Grundarfirði og hafði sterkar taugar til æskuslóðanna.“
Hér má sjá síðan hæfileika Jens Péturs í að smala rollum. Reyndar smalar hann þeim ekki, heldur elta þær hann, líkt og sjá má með því að smella hér.