Hildur vill fækka frídögum barna: „það þarf ekki langskólagenginn stærðfræðing til að sjá þær áskoranir sem mæta fjölskyldufólki

Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins ætlar í dag að leggja fram tillögu í borgarráði til þess að mæta fjölskyldum og atvinnulífi með fækkun frídaga í skólakerfinu.

Hildur greinir frá tillögunni á Facebook síðu sinni en Vísir greindi fyrst frá.

„Frídagar grunnskólabarna í Reykjavík eru samanlagt 73 árlega, að undanskildum lögbundnum frídögum. Systkini á tveimur skólastigum eiga samanlagt 79 frídaga árlega. Foreldrar á almennum vinnumarkaði eiga flestir 24 frídaga árlega. Það þarf ekki langskólagenginn stærðfræðing til að sjá þær áskoranir sem mæta fjölskyldufólki við skipulag hversdagsins. Atvinnurekendur lenda ekki síður í vanda vegna þeirra ráðstafana sem gera þarf vegna fjarveru foreldra frá vinnu,“ segir Hildur sem vill fækka frídögunum um tíu.

Leggur Hildur til að skipulags og starfsdagar milli skólastiga verði betur samræmdir. Skólasetning og skólaslit yrðu jafnframt kennsludagar og að frístund standi til boða á dögum sem foreldraviðtöl fara fram.

Segir Hildur tillöguna einnig vera jafnréttisaðgerð þar sem reynslan sýni að konur taka enn aukna ábyrgð á barnauppeldinu og séu líklegri til þess að taka sér frí frá vinnu vegna barnanna.