Hatrið er enn til staðar: talið að þeim verði refsað

Orðið á götunni er að forysta Framsóknarflokksins og Miðflokksins eigi ekki í neinum óformlegum þreifingum á bak við tjöldin varðandi sættir, líkt og ýjað hefur verið að á síðum samfélagsmiðla undanfarið. Á Eyjunni segir að orkupakkamálið og önnur lík mál hefði jafnvel getað sameinað Miðflokkinn og Framsóknarflokkinn hugmyndafræðilega og til að bæta samskipti forystumanna, jafnvel til að Sigmundur Davíð og Sigurður Ingi myndi slíðra sverðin. Á Eyjunni segir:

„Miðflokkurinn stofnaður í kjölfar þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson náði ekki endurkjöri sem formaður Framsóknarflokksins árið 2016, í kjölfar Wintris-málsins og Panama-skjalanna. Var Sigurður Ingi Jóhannsson kjörinn formaður með 52% atkvæða og stormaði Sigmundur út úr Háskólabíó þegar úrslitin lágu ljós fyrir. Hefur andað köldu milli þeirra síðan.“

Eyjan kveðst hafa eftir ónafngreindum heimildamönnum sínum innan flokkanna, að slíkar sögusagnir séu víðsfjarri sannleikanum og enn sé ansi grunnt á því góða þarna á milli. Þá hafi Klaustursmálið mikil áhrif, þar sem talað var um að hjóla í Lilju Alfreðsdóttur. Á Eyjunni segir:

Miðflokksmenn töldu að hún hefði ekki sýnt því neinn áhuga að „tengjast“ Miðflokknum, því væri um hefndaraðgerð að ræða. Þá er rifjað upp þegar Sigmundur sagði sjálfur í Klausturs-upptökunum að hann gæti sjálfum sér um kennt,en hann skipaði Lilju utanríkisráðherra.

Á Eyjunni segir:

„Sagði hann Lilju ekki treystandi, hún spilaði á karlmenn eins og kvenfólk kynni. Einnig voru höfð önnur afar ósmekkleg ummæli um Lilju, sem verða ekki endurtekin hér, en ljóst er að allar meintar sáttatilraunir þarna á milli eru úr lausu lofti gripnar, eða líkt og einn framsóknarmaður orðaði það við Eyjuna: „Hatrið er enn til staðar.““

Þá segir einnig á Eyjunni: „ ... ekki loku fyrir það skotið að ásýnd Miðflokksins „stórbatni“ eftir næstu Alþingiskosningar, þar sem óánægju gætir meðal stórs hóps í baklandinu með þá Gunnar Braga Sveinsson og Bergþór Ólason, en þeir þóttu hvað orðljótastir í Klausturmálinu og iðrun þeirra vart merkjanleg. Er talið að þeim verði refsað í prófkjörum þegar þar að komi og nýtt fólk fengið inn.“