Friðrik hefði orðið 21 árs í dag: „við vonum á hverjum degi að við vöknum af þessari martröð sem gerist víst ekki“

Friðrik Jens Guðmundsson hefði orðið 21 árs í dag en það eru sjö mánuðir síðan hann lést. Í tilefni afmælisdags Friðriks birti móðir hans Helga Óskarsdóttir myndband tileinkað syni sínum.

„Friðrik var einstakur persónuleiki bæði ljúfur og góður, fallegur, stoltur, með mikla réttlætiskennd og mátti ekkert aumt sjá og vildi hjálpa öllum, við erum óendanlega stolt af drengnum okkar. Við söknum þess að geta knúsað drenginn okkar og sagt einu sinni enn hvað við elskum hann mikið, við vonum á hverjum degi að við vöknum af þessari martröð sem gerist víst ekki,“ segir Helga við myndbandið.

\"\"

„Friðrik er fæddur á rafrænni öld þar sem allar myndir voru á rafrænu formi og lítið framkallað en við höfum undanfarna daga framkallað og sett í albúm 800 myndir af honum sem ylja okkur en minningarnar eru í hjarta okkar sem aldrei gleymast. Í tilefni af afmælinu hans höfum við breytt herberginu hans í leikherbergi fyrir barnabörnin okkar sem honum þótti gífurlega vænt um en það er í hans anda að gleðja aðra,“ segir Helga.

Í morgun lagði Helga 400 þúsund krónur inn á reikning Eitt líf í nafni Friðriks til þess að heiðra minningu hans og er það framlag fjölskyldu og vinkvenna hennar.

„Er það til forvarnarstarfa með von um að það megi fækka þeim foreldrum sem eru í sömu sporum og við. Með þessu myndbandi viljum við heiðra minningu yndislega drengsins okkar, bróður, frænda og mág sem við söknum óendanlega,“

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan: