Eymundur er látinn

Eymundur Matthíasson Kjeld lést þann 16. ágúst síðastliðinn eftir langvinn veikindi. Hann fæddist þann 1. febrúar árið 1961 í Reykjavík og var því 58 ára gamall. Morgunblaðið greinir frá.

\"\"

Eymundur stofnaði hljóðfæraverslunina Sangitamiya á Klapparstíg árið 2005, þar sem seld eru hljóðfæri frá öllum heimshornum. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1980 og BS-gráðu í stærðfræði og eðlisfræði frá Washington & Lee University í Virginíu í Bandaríkjunum árið 1983. Þá Eymundur stund á píanónám í Manchester á árunum 1983 til 1986 og nam einnig tónsmíðar og fiðluleik. Eymundur kenndi á árunum 1986 til 1990 við Menntaskólann í Reykjavík og var starfsmaður Talnakönnunar frá 1990 til 1996. Eftir það starfaði hann sjálfstætt.

Eymundur var einn af forsvarsmönnum Sri Chinmoy-miðstöðvarinnar. Miðstöðin byggir starf sitt á kenningum indverska andlega meistarans og friðarfrömuðarins Sri Chinmoy. Hann stóð áratugum saman fyrir ókeypis námskeiðum í jóga og hugleiðslu hér á landi. Þá var hann einn af stofnendum Friðarhlaups Sri Chinmoy hér á landi, en það er alþjóðlegt kyndilhlaup sem hlaupið hefur verið í yfir þrjá áratugi, eða frá árinu 1987.

Eymundur var enda öflugur hlaupari og vann til að mynda fyrsta Jökulsárhlaupið árið 2004. Heimildarmyndin Seeker, sem fjallaði um Eymund og sönghóp sem hann stofnaði, var sýnd á RIFF, alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, síðastliðið haust.