Edda sif er gengin sex mánuði á leið með sitt fyrsta barn

Íþróttafréttakonan og dagskrárgerðarkonan Edda Sif Pálsdóttir á von á sínu fyrsta barni með Vilhjálmi Siggeirssyni.

Vilhjálmur birti myndir af Eddu Sif á Facebook síðu sinni þar sem hann skrifar: „Fallega Edda mín.“

Samkvæmt Vísi eiga Edda og Vilhjálmur von á dreng þann 3. febrúar á næsta ári og er Edda gengin sex mánuði á leið.