Bjarni ben: „þetta er nauðsynlegt að hafa í huga þegar einstaka stjórnmálamenn tala um ísland sem megnasta spillingarbæli“

„Við erum stolt af landinu okkar. Við viljum vera í fremstu röð. Við erum framsækin, metnaðarfull og bjartsýn þjóð. Við viljum, þrátt fyrir að vera smá í alþjóðlegu samhengi, skipa okkur á bekk með þeim sem standa fremst á alla mælikvarða mannlífsins og okkur hefur gengið vel samkvæmt öllum úttektum að gera einmitt það.

Við tökum fullan þátt í alþjóðlegu samstarfi til að auka velmegun og velsæld landsmanna á grundvelli sanngirni, frjálsra viðskipta og friðar.“

Þannig hefst yfirlýsing frá Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins vegna Samherjamálsins. Í Kveik á RÚV sagði að útgerðarfélagið Samherji stundi stórfelldar mútugreiðslur til stjórnmála- og embættismanna í Afríkuríkinu Namibíu til þess að ná undir sig fiskveiðikvóta. Einnig sagði að Samherji, sem er umsvifamesta útgerðarfélag Íslands með um 111 milljarða króna eigið fé, hafi greitt á annan milljarð króna í mútur á síðustu árum.“

Bjarni tjáir sig á Facebook og segir: „Við gerum skýra kröfu um að lög og reglur séu virt og þegar einhver brýtur gegn þessum grundvallargildum gerum við ráð fyrir að slíkt hafi afleiðingar.“

Þá sagði Bjarni enn fremur:

„Við viljum að þar til bærar stofnanir upplýsi, taki ákvörðun um ákæru og dæmi eins og efni eru til. Þannig viljum við að hlutirnir virki, vegna þess að það er rétt. Og það er meðal annars þess vegna sem Ísland skipar sér í flokk með þeim þjóðum heimsins þar sem spilling er minnst.

Þetta er nauðsynlegt að hafa í huga þegar einstaka stjórnmálamenn stíga nú fram og tala um Ísland sem megnasta spillingarbæli.

Það skiptir miklu, þegar einstök mál koma upp sem nauðsynlegt er að rannsaka opinberlega, að halda þeim grunngildum á lofti sem tryggt hafa góða stöðu okkar og framúrskarandi lífskjör,“ sagði Bjarni og bætti við að lokum:

„Fyrir þeim árangri höfum við barist í kynslóðir og eigum að segja þá sögu með stolti.“