Vilhjálmur sammála páli

Vilhjálmur Árnason, sjálfstæðismaður í Suðurkjördæmi segist á Þjóðbraut í kvöld sammála Páli Magnússyni, oddvita Suðurkjördæmis um að Bjarni Benediktsson, formaður hafi gert mistök með því að ganga framhjá kjördæminu við val á ráðherrum flokksins. „Við munum þó áfram vinna að góðum málum fyrir kjördæmið þótt það verði erfiðara en ef við hefðum ráðherra“, segir Vilhjálmur og telur þingmenn kjördæmisins ekki verða til neinna vandræða í þingflokknum út af málinu. Flokksmenn þar hafi þó verið mjög óánægðir þótt Vilhjálmur vissi ekki til þess að neinn hafi sagt sig úr flokknum þar.