Vg skotin í kaf af eigin sérfræðingi

Hörð orðaskipti urðu milli Jóns Steindórs Valdimarssonar og Katrínar Jakobsdóttur á þingi vegna veiðigjalda. Jón Steindór las úr góðri grein Indriða H. Þorlákssonar, sem hefur verið sérfræðingur Vg í mörgum málum. Jón Steindór las til að mynda þetta:

„Það er alls óviðunandi að þjóðin fái einungis smánargjald fyrir afnot af auðlind sinni, nánast ölmusu sem rétt dugar til að greiða þann kostnað sem fylgir því að sjá til þess að auðlindin verði ekki eyðilögð heldur nýtt með hagkvæmum hætti. Við framlagningu frumvarpsins töldu margir þetta atriði þjónkun við hagsmuni útgerðareigenda sem von stæði til að yrði leiðrétt í þinginu. Með framkomnu áliti atvinnuveganefndar er ljóst að hún hefur ekkert lært af sneypuför sinni sl. vor og er slegin þeirri blindu að hlutverk Alþingis sé ekki að gæta almannahags heldur ganga erinda sérhagsmunaafla.“

Og svo sagði hann: „Herra forseti. Mér er til efs að nokkur stjórnmálaflokkur hafi í 100 ára sögu fullveldisins verið skotin með jafn sterkum og málefnalegum rökum af eigin sérfræðingi og flokkur hæstvirts forsætisráðherra. Telur hæstvirtur forsætisráðherra ekkitilefni til að snúa af þessari braut og fresta málinu og hugsa það örlítið betur?“

Nánar á

http://www.midjan.is/vg-skotin-kaf-af-eigin-serfraedingi/