Vextir seðlabankans óbreyttir

Vextir Seðlabankans verða óbreyttir, segir í tilkynningu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í morgun. Meginvextir bankans verða áfram 4,25 prósent. Ekki þykir tími nú að lækka vexti:

„Horfur eru á minnkandi spennu í þjóðarbúskapnum. Eigi að síður er áfram þörf fyrir peningalegt aðhald til að halda aftur af örum vexti innlendrar eftirspurnar. Dregið hefur úr hættu á ósjálfbærum launahækkunum til skamms tíma litið en undirliggjandi spenna á vinnumarkaði er enn til staðar\", segir peningastefnunefndin.

Í tilkynningu í dag segir einnig:

„Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í maíhefti Peningamála eru horfur á að hagvöxtur verði aðeins minni í ár en í fyrra. Fer þar saman hægari vöxtur útflutnings og minni vöxtur innlendrar eftirspurnar. Þetta er áþekkur hagvöxtur og gert var ráð fyrir í febrúarspá bankans og líkt og þá er talið að hann minnki frekar á næstu tveimur árum\".

Og að Seðlabankinn hafi haldið verðbólgumarkmiði sínu:

Verðbólga var 2,5 prósent á fyrsta fjórðungi ársins og 2,3 prósent í apríl. Undirliggjandi verðbólga er á svipuðu róli. Verðbólga hefur því í stórum dráttum verið í samræmi við 2½% verðbólgumarkmið Seðlabankans síðustu mánuði. Áfram hefur dregið úr árshækkun húsnæðisverðs en gagnstæð áhrif gengisbreytinga krónunnar á verðbólguna hafa dvínað. Líklegt er að þessi þróun haldi áfram á næstunni. Gengi krónunnar er nær óbreytt frá síðasta fundi peningastefnunefndar og gjaldeyrismarkaðurinn hefur áfram verið í ágætu jafnvægi. Hvorki verðbólguhorfur né verðbólguvæntingar hafa breyst að neinu marki frá síðasta fundi nefndarinnar.