Vantar 290 hjúkrunarfræðinga

Alls vantar 290 hjúkrunarfræðinga til starfa til að manna fjármögnuð stöðugildi hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum á Íslandi. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um vinnumarkað hjúkrunarfræðinga.  Þar segir enn fremur að samkvæmt mati framkvæmdastjóra hjúkrunar og hjúkrunarforstjóra vanti 523 hjúkrunarfræðinga til starfa miðað við áætlaða þörf á hjúkrunarfræðingum.

Þá eru einungis 69 prósent hjúkrunarfræðinga í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga en um þúsund hjúkrunarfræðingar starfa við annað en hjúkrun. 

 

Í skýrslunni segir að launamunur á hjúkrunarfræðingum og öðrum stéttum með sambærilega menntun og ábyrgð í starfi hjá hinu opinbera sé um 20 prósent. Algengustu byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga eru 359 þúsund krónur fyrir fullt starf og meðaltalsdagvinnulaun hjúkrunarfræðinga eru 526 þúsund krónur.