Ummæli hildar og oddnýjar vegna hlíðamálsins dæmd dauð og ómerk

Ummæli sem Hildur Lilliendahl Viggósdóttir og Oddný Arnarsdóttir létu falla vegna svokallaðs Hlíðamáls, voru í dag dæmd dauð og ómerk í Héraðsdómi Reykjavíkur. Einnig voru þær dæmdar til að greiða miskabætur vegna ummælanna sem þær létu falla um tvo menn. 

Mbl.is greindi frá því að Hildur þurfi að greiða mönnunum tveimur 150 þúsund krónur og Oddný þurfi að greiða þeim 220 þúsund krónur. Mennirnir kröfðust að fá tvær milljónir króna í miskabætur vegna ummæla Oddnýjar og eina og hálfa milljón króna vegna ummæla Hildar. Oddný og Hildur þurfa einnig að greiða 600.000 kr. til ís­lenska rík­is­ins í máls­kostnað vegna starfa Vil­hjálms H. Vil­hjálms­son­ar, lög­manns mann­anna.

Hlíðamálið vakti gífurlega athygli á sínum tíma, en Fréttablaðið birti á forsíðu sinni frétt vegna málsins með fyrirsögninni „Íbúðin var útbúin til nauðgana“. Í kjölfar fréttarinnar voru skipulögð mótmæli fyrir utan lögreglustöðina á Hverfisgötu þar sem mótmælt var því að mennirnir hefðu ekki verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Eftir nokkra mánaða rannsókn lögreglu var málið loks látið niður falla og mennirnir aldrei kærðir.

Ummæli Oddnýjar sem voru dæmd dauð og ómerk voru eftirfarandi.

1. Það er ekki krafist gæsluvarðhalds yfir mönnum sem hefur í að minnsta kosti tvö mismunandi skipti tekist að nauðga konum.

2. Ekki nóg með að þeir nauðgi þeim heldur gera þeir það kerfisbundið.

3. Í bæði skiptin var bekkjarskemmtun hjá HR, í að minnsta kosti öðru tilfellinu var stúlkunni byrlað ólyfjan, þeir taka þær heim í íbúð til sín og þetta var gert í einhvers konar samstarfi. Planað á milli þessara tveggja manna.

4. Að mér skilst var komið í veg fyrir þriðju nauðgunina.

5. Þetta eru tveir menn sem hafa í að minnstakosti tvö skipti tekist að nauðga, í eitt skipti var komið í veg fyrir nauðgunina, við vitum ekki hvað hefur gerst áður og þessir menn eru látnir lausir.

Ummæli Hildar má sjá hér að neðan.

„... þá gríðarlega alvarlegu aðför lögreglunnar að öryggi kvenna í Reykjavík að láta eiga sig að fara fram á gæsluvarðhald yfir körlum sem nauðga konum SAMAN svo yfirdrifið kerfisbundið að þeir hafa til þess sérútbúna íbúð.“