Umhverfisstofnun krefst 3.800 milljóna króna frá þrotabúi wow air

Umhverfisstofnun hefur lagt stjórnvaldssekt á þrotabú flugfélagsins WOW Air að upphæð 3.798.631.250 króna vegna vanrækslu flugrekanda á að standa skil á losunarheimildum fyrir árið 2018. Um er að ræða langhæstu sekt sem Umhverfisstofnun hefur lagt á í sögu stofnunarinnar.

Ísland er aðili að viðskiptakerfi Evrópusambandsins um losundarheimildir sem miðar að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá iðnaði og flugi. Meginreglan er að sá borgi sem mengar. Þeir aðilar sem losa meira en áætlað var þurfa að kaupa sér fleiri losunarheimildir. Fjárhæð stjórnvaldssektarinnar er lögbundin og samsvarar 100 evrum í íslenskum krónum vegna hverrar losunarheimildar, en eitt tonn af CO2 jafngildir einni losunarheimild. Samkvæmt vottaðri losunarskýrslu flugrekandans WOW Air var heildarlosun ársins 2018 278.125 tonn CO2.

Til viðbótar við sektina þarf einnig að standa skil eða kaupa nýjar losunarheimildir sem samsvara losun frá rekstri flugrekanda á árinu 2018.

Síðasti dagur til þess að gera upp losunarheimildir var 30. apríl 2019 en á þeim tímapunkti hafði engum losunarheimildum verið skilað vegna losunar WOW Air undangengið ár. Þrotabú WOW Air hefur rétt á að skjóta ákvörðuninni til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins innan þriggja mánaða frá móttöku hennar.