Tillaga sjálfstæðisflokks um samflot og samferðabrautir í reykjavík felld í borgarstjórn

Tillaga Sjálfstæðisflokksins um að nýta forgangsakgreinar fyrir almenningssamgöngur í Reykjavík jafnframt sem samferðabrautir fyrir þá sem fjölmenna í bíla í samfloti, þrír eða fleiri, og draga þar með úr bílaumferð með bættri nýtingu var felld á fundi borgarstjórnar í dag.

Jórunn Pála Jónasdóttir, borgarfulltrúi Sjálftæðisflokksins, benti á í umræðunni um tillöguna í borgarstjórn að lausnin væri skjótvirk leið til að tappa af umferðarvandanum samstundis. Þá lýsti hún því yfir að það væru vonbrigði að meirihlutinn hafi fellt tillöguna.   

„Það eru mikil vonbrigði hvað það er lítill spenningur fyrir því að þróa þessa leið sem við leggjum til. Tölurnar sýna að þarna eru sóknarfæri og eins og ég nefndi áðan þá hljóta það að vera breyttar ferðvenjur ef fólk fer að ferðast saman fleiri í bíl, það er skref í rétta átt,“ sagði Jórunn á fundi borgarstjórnar og bætti við: „Svo að auki, eins og líka er búið að fjalla um, er samkomulagið enn í mótun og ég mun beita mér fyrir því að þessi hugmynd fari áfram inn í þá vinnu á þeim vettvangi,“ segir Jórunn Pála.

Þá sagði Jórunn í ræðu sinni í borgarstjórn að tillagan fjallaði um lausn á mjög aðkallandi vanda.

„Tillagan sem er lögð fram undir þessum lið fjallar um lausn við mjög aðkallandi vanda, umferðarhnútnum í Reykjavík sem hefur verið að herðast mjög á síðustu árum,“ sagði Jórunn og bætti við: „Hér inni í þessum sal er hluti af því fólki sem heldur um reimarnar sem mynda hnútinn. Það virðist stundum skiptast í tvo hópa, þau sem vilja gera dýrðlegar slaufur og svo hin sem myndu ekki kippa sér mikið upp við það þótt þetta allt saman myndi enda í tvöföldum masókískum rembihnút.“

Í greinargerð með tillögunni segir að markmiðið með þessari tillögu sé að minnka umferðarteppur í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu.

„Með samferðabrautum (e. Car pool lanes eða High occupancy vehicle lanes) yrði áhersla lögð á að flytja sem flest fólk á milli staða á hverjum tíma en ekki sem flesta bíla. Forgangsakreinar fyrir almenningssamgöngur í Reykjavík, stundum kallaðar Rauði dregillinn, sem hingað til hefur einungis verið fyrir strætó, leigubifreiðar og forgangsakstur yrðu þá einnig nýttar af öðrum ökutækjum með þrjá eða fleiri farþega,“ segir enn fremur í greinargerðinni.