Þuríður hjólar í steingrím: skítsama um öryrkja – „algjörlega misboðið að horfa á frekjukast í ræðustól“

„Mér er algjörlega misboðið að hlusta á málflutning Steingríms J. Sigfússonar, sem finnst nógu gott fyrir öryrkja að hafa ENN krónu á móti krónuskerðinguna. Þessa sérstöku framfærsluuppbót sem er skert 100% og var sett aftur á í tíð hans og Jóhönnu Sigurðardóttur.“

Þetta segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands í pistli hér á Hringbraut og sakar Steingrím um að vera sama um hvernig öryrkjar og fatlaðir draga fram lífið. Þá misbýður henni hvernig Steingrímur hefur varið ríkisstjórn hans og Jóhönnu Sigurðardóttur. Inga Sæland sakaði Steingrím um það sama og þá brást hann illa við. Þuríður Harpa segir:

„Hann gerir engan greinarmun á því hvort hér sé dýpsta efnahagskreppa eða mesta hagsældarskeið Íslands. Mér finnst á hans málflutningi honum vera algjörlega skítsama um það hvernig öryrkjar og fatlað fólk dregur fram lífið af smánarlágri framfærslu. Mér er algjörlega misboðið að horfa á forseta Alþingis fá frekjukast í ræðustól, og hlusta á hann verja gjörðir sinnar stjórnartíðar, mér er algjörlega misboðið að heyra hann væna Ingu Sæland um að virða ekki kynsystur sína Jóhönnu Sigurðardóttur.“

Mér er misboðið að hlusta á hann tala um að við sem erum í forystu heildarsamtaka fatlaðs fólks séum ekki að berjast fyrir þá sem í dag þurfa að lifa af 212.000 kr. framfærslu í boðið ríkisstjórnarinnar. Til margra ára hefur ÖBÍ ítrekað og algjörlega beðið ríkjandi ríkisstjórnir að afnema krónu á móti krónu skerðinguna, þ.e. taka út 100% skerðingu á sérstakri framfærsluuppbót. Vegna þess að fatlað fólk þarf með henni að kaupa sig inn á atvinnumarkaðinn. Til margra ára höfum við krafist þess, bæði með ályktunum, kröfum, samtölum og beiðnum til stjórnvalda að örorkulífeyrir verði hækkaður þannig að hann sé að minnsta kosti til jafns við lágmarkslaun.

Sú ríkisstjórn sem nú situr, sýndi svo sannarlega hvað þeim finnst um öryrkja, þegar atvinnuleysisbætur voru hækkaðar fyrir ári síðan langt upp fyrir örorkulífeyrir. Í dag er það bláköld staðreynd að í tíð þessarar ríkisstjórnar eru lágmarkslaun kr. 317.000 - Atvinnuleysisbætur kr. 280.000 - Örorkulífeyrir kr. 248.000 - Allar upphæðir fyrir skatt. Þetta getur ekki verið skýrar, hér hefur fátækasta fólkið á Íslandi verið algjörlega og viljandi skilið eftir! Í boði ríkisstjórnar og forsætisráðherra, sem sennilega fékk atkvæði margra öryrkja í síðustu kosningum vegna orða sinna um að ekki ætti að láta fátækt fólk bíða eftir réttlæti. Ja það var þá réttlæti ég segi nú ekki annað.“

Hér má lesa pistilinn í heild sinni.