Þorvaldur í þjóðbraut

Hringbraut heldur áfram að fjalla um fótbolta. Af gefnu tilefni. Í kvöld verður rætt við Þorvald Örlygsson, fyrrum atvinnumann í Englandi.

Þorvaldur er margreyndur í fótbolta og á að baki merkan feril. Hann segir í kvöld frá veru sinni hjá Notthingam Forest og Stoke City.

Þorvaldur, sem aðrir, dáist að íslenska landsliðinu og frammistöðu þess, bæði í undankeppninni og eins nú í lokakeppni í Frakklandi.