Styrkja hjartadeild landspítala um 18 milljónir króna

Samtök fjármálafyrirtækja, fyrir hönd vátryggingafélaganna Sjóvár, TM, VÍS og Varðar, leggja hjartadeild Landspítala til 18 milljónir króna á næstu árum, samkvæmt samningi sem undirritaður var 16. október 2018.  Féð rennur í sjóð sem verður meðal annars nýttur til að stórefla fræðslu og forvarnarstarf á vegum hjartadeildarinnar Landspítala. 

Styrk vátryggingafélaganna til hjartadeildar verður varið til að stórefla fræðslu og forvarnarstarf  á vegum hennar. Hjarta- og æðasjúkdómar eru helsta dánarorsök Íslendinga og því þykir vel við hæfi að vátryggingafélögin styðji við hjartadeild Landspítala með þessum hætti. 

Í fyrstu verður megináherslan á að styrkja svokallaðar annars stigs forvarnir, þ.e. forvarnir hjá þeim sem hafa þegar greinst með kransæðasjúkdóm. Það felur meðal annars í sér reykleysismeðferð, meðferð við háþrýstingi, sykursýki og hækkuðu kólesteróli. Einnig verður skoðað hvernig best er að efla forvarnir hjá þeim sem enn hafa ekki greinst með hjartasjúkdóm. Í því tilliti kunni að vera áhugavert að beina sjónum fyrst og fremst að yngri kynslóðum. 

Samningurinn felur meðal annars í sér þróun vefsíðu með gagnvirku fræðsluefni um kransæðasjúkdóma. Styrkurinn verður einnig nýttur til umbóta á aðstöðu sjúklinga og aðstandenda þeirra sem liggja á hjartadeild. Þá verður enn fremur lagt fé til eflingar starfsþróunar starfsfólks deildarinnar. 


Á myndinni með þessari frétt eru: Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala, Katrín Júliusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja og Bylgja Kærnested, deildarstjóri á hjartadeild skrifa undir samstarfssamninginn. Fulltrúar vátryggingfélaganna eru einnig með á myndinni.