Sólkonungurinn

Margir hafa undrast, jafnvel hneykslast, á kostnaðinum við fullveldishátíðina á Þingvöllum, sem skrifstofa Alþingis virtist raunar ekki hafa fyllilega á hreinu hver væri. Einkum hafa menn staldrað viðtugmilljóna kostnað vegna lýsingar þar á Lögbergi helga, um hábjartan dag á miðju sumri, en sú skýring var gefin að einmitt þess vegna hefði hún þurft að vera svo mikil, til þess að yfirgnæfa sjálfa sólina.

Það segir hins vegar sitt um hvað stjórnarandstaðan er slöpp, að hún hafi ekki tætt Steingrím J. Sigfússon, forseta Alþingis, sundur og saman í háði vegna þessa. Að hann hafi viljað að þjóðin sæi ekki sólina fyrir sjálfum sér, með því að nefna hann ekki annað en sólkonunginn héðan í frá, að loks hafi þingheimur eina stund verið fyllilega upplýstur af forseta, að menn verði að kunna sér hóf í fjárútlátum þó það sé fagnaðarefni að forseti hafi kveikt á perunni og svo framvegis. Því oft er það árangursríkara að hía á valdhafana en að veitast að þeim með skömmum. Hvar eru arftakar Davíðs og Össurar? 

Nánar á

http://www.vb.is/skodun/solkonungurinn/149863/