Nýr bæjarstjóri skagafjarðar

Á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þriðjudaginn 14. ágúst var samþykkt samhljóða að ráða Sigfús Inga Sigfússon í starf sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagafjarðar kjörtímabilið 2018-2022.

Sigfús Ingi er 42 ára gamall og hefur undanfarin ár starfað sem verkefnastjóri í atvinnu-, menningar- og kynningarmálum hjá sveitarfélaginu. Sigfús Ingi hefur viðamikla reynslu úr störfum í opinberri stjórnsýslu hjá bæði ríki og sveitarfélagi og hefur einnig starfað hjá fyrirtækjum á einkamarkaði.

Sigfús lauk BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2001 og MBA-gráðu frá University of Stirling í Skotlandi árið 2002, auk þess hefur hann stundað nám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.

Alls sóttu 17 einstaklingar um starfið en 4 drógu umsókn sína til baka. Ráðningarferlið var í höndum ráðninga- og ráðgjafafyrirtækisins Hagvangs