Siðmennt vill banna umskurð drengja

Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, hvetur Alþingi til að samþykkja frumvarp Silju Daggar Gunnarsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, sem bannar umskurð drengja, í umsögn sinni um frumvarpið.

Í áliti Siðmenntar segir orðrétt: \"Þar sem um er að ræða alvatrlegt og óafturkræft inngrip er óásættanlegt að börn undir lögaldri séu umskorin.\"

Siðmennt telur að brotið sé á réttindum ungra drengja með umskurði, nema slík aðgerð sé talin nauðsynleg af heilsufarslegum ástæðum. Þá segir einnig að réttur barns sé trú og siðum yfirsterkari og að þó svo ýmsar siðavenjur hafi verið stundaðar í árþúsund, sé það ekki réttlæting á að þær standi óhreyfðar um alla eilífð.