Sesselía ráðin til íslandspósts

Sesselía Birgisdóttir hefur verið ráðin framkvæmdarstjóri Þjónustu- og markaðssviðs Íslandspósts og tekur til starfa í lok sumars. Hún hefur starfað sem forstöðumaður stafrænna miðla og markaðsmála hjá Advania frá árinu 2016 en áður starfaði hún sem sjálfstæður ráðgjafi á sviði markaðsmála. Sesselía bjó lengi í Svíþjóð þar sem hún var ein af stofnendum og stjórnandi hjá alþjóðlegu leigumiðluninni Red Apple Apartments.

„Ég er mjög spennt fyrir því að taka þátt í þessu skemmtilega og krefjandi verkefni, Íslandspóstur er flott fyrirtæki sem þjónustar alla landsmenn en stendur á miklum tímamótum. Ég hlakka mikið til að taka þátt í öllum þeim stóru verkefnum sem framundan eru og taka þátt í að marka skýra stefnu sem skilar árangri.“ segir Sesselía Birgisdóttir.

„Það er okkur sönn ánægja að fá Sesselíu til starfa þar sem að hún hefur fjölbreytta reynslu í þjónustu, sölu og markaðsmálum. Sesselía hefur verið áberandi í markaðsheiminum síðustu misseri þar sem hún hefur talað fyrir mikilvægi markaðs og þjónustumála og fléttað þau saman við hraða þróun í stafrænum heimi. Við hjá Íslandspósti erum að leggja stóraukna áherslu á þessi mál í okkar starfsemi enda er lykillinn að framtíðarárangri okkar sú að þjónusta viðskiptavini okkar sem best og nýta til þess tæknilausnir sem virka. Íslandspóstur er í endurskipulagningarferli þar sem megin áherslan er fyrst um sinn er að ná stjórn á kostnaði en stóra verkefnið er auðvitað að marka stefnu til framtíðar og finna fyrirtækinu stað í breyttu viðskiptaumhverfi og því er Sesselía mjög mikilvæg viðbót í hópinn enda sterkur og reyndur leiðtogi á þessu sviði“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts.

Sesselía er með tvær mastersgráður frá Háskólanum í Lundi, annars vegar í stjórnun mannauðs með áherslu á þekkingarmiðlun og breytingar og hinsvegar í alþjóða markaðsfræðum og vörumerkjastjórnun. Sesselía er gift Ragnari Fjalar Sævarssyni markaðs- og samskiptastjóra Hörpu og eiga þau þrjú börn.