Sáá dæmt að greiða háar skaðabætur

SÁÁ þarf að greiða fyrrverandi starfsmanni og félagsmanni í SFR - stéttarféelagi í almannaþjónustu, alls 4,8 milljónir króna í skaðabætur, miskabætur og lögfræðikostnað vegna ólögmætrar uppsagnar samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp í dag.

Starfsstöð starfsmannsins var á Akureyri en honum var tilkynnt að til stæði að færa hann til í starfi á starfsstöð SÁÁ í Reykjavík án rökstuðnings. Héraðsdómur féllst á að flutningur starfs milli landshluta jafngildi uppsögn og dæmdi SÁÁ til að greiða starfsmanninum bætur vegna hennar.

Málið átti sér nokkurn aðdraganda. Starfsmaðurinn hóf störf hjá SÁÁ árið 2005 en flutti sig á starfsstöð samtakanna á Akureyri árið 2008 þegar hann tók við starfi dagskrárstjóra göngudeildar. Starfsmanninum var tilkynnt bréflega í október 2016 að til stæði að veita honum áminningu vegna starfa hans fyrir barnaverndarnefnd, sem ekki voru talin samrýmast störfum hans fyrir SÁÁ. Starfsmaðurinn leitaði þegar til síns stéttarfélags, SFR, sem vann að málinu með honum í kjölfarið.

Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að SÁÁ hafi hafnað öllum kröfum starfsmannsins, enda sé heimilt að færa starfsmenn milli starfsstöðva. Á þessi rök féllst héraðsdómur ekki. Í dómnum er bent á að slíkar tilfærslur verði að koma til vegna skipulagsbreytinga og ekkert bendi til þess að um neinar skipulagsbreytingar hafi verið að ræða.

„Með vísan til þess sem rakið hefur verið verður ekki fallist á það með stefnda [SÁÁ] að frammangreind ákvæði kjarasamningsins eða ákvæði ráðningarsamningsins frá 2008 hafi heimilað honum að færa stefnanda [starfsmanninn] á aðra starfsstöð. Slík breyting er of mikil til að fallist verði á það að um sé að ræða breytingu sem heimil sé á grundvelli ráðningarsamningsins sem breyting á starfssviði, auk þess sem líta verður svo á, með hliðsjón af orðalagi samningsins, að staðsetning starfsstöðvar sé hluti af ráðningarkjörum,“ segir um þetta í dómi héraðsdóms