Ræddu móttöku lbgt-flóttafólks frá kenýa

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með Filippo Grandi, framkvæmdastjóra Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Michelle Bachelet, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna.

Á fundi forsætisráðherra með Filippo Grandi ræddu þau meðal annars um samstarf Íslands við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, vaxandi fjölda og neyð flóttamanna í heiminum og með hvaða hætti alþjóðasamfélagið geti brugðist við núverandi þróun. Þá ræddu þau einnig móttöku flóttafólks á Íslandi, meðal annars um hóp LBGT-flóttafólks frá Kenýa sem er væntanlegur til Íslands á næstunni en Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur hrósað íslenskum stjórnvöldum fyrir það hvernig staðið er að móttöku flóttamanna hér á landi.  Á fundi forsætisráðherra með Michelle Bachelet ræddu þær um stöðu mannréttindamála og afleiðingar vaxandi útlendingahaturs og hatursorðræðu. Þá snerust umræðurnar ekki hvað síst um stöðu jafnréttismála, sem nú eru til umræðu í yfirstandandi lotu Mannréttindaráðsins.

„Það var töluverð áskorun fyrir Ísland að taka sæti í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í fyrra en ég tel að við höfum sett mikilvæg mál á dagskrá, bæði á sviði kvenréttinda og réttinda hinsegin fólks. Samstarf okkar við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna er okkur mikilvægt og dýrmætt að finna að okkar framlag í þeim efnum skiptir máli,“ segir Katrín.

Þá hélt forsætisráðherra ávarp við opnun sýningar um umhverfisbreytingar í Palais des Nations. Sýningin er skipulögð í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar í Genf og Fiji með þátttöku smárra eyríkja frá öllum heimshornum. Katrín Jakobsdóttir, er í þriggja daga heimsókn í Genf í tengslum við júnílotu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem jafnréttismál eru í brennidepli. Forsætisráðherra mun meðal annars ávarpa Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna, taka þátt í árlegri umræðu mannréttindaráðsins um jafnréttismál og funda með yfirmönnum alþjóðastofnana.