Óskuðu eftir aðstoð prests: „hefur mikla reynslu í því að ræða við fólk þegar upp koma atvik, sem setja sorg í fólk“

Kallað var á prest til að vera viðstaddur starfsmannafund á Reykjalundi nýverið eftir að Birgi Gunnarsyni, forstjóra Reykjalundar til 12 ára, var sagt upp. Ekki er búið að auglýsa stöðu nýs forstjóra. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu.

Hringbraut greindi frá því í gær að formaður SÍBS, hafi sagt upp Magnúsi Ólasyni, framkvæmdastjóra lækninga á Reykjalundi. Magnús hafði starfað á endurhæfingarstöðinni í 35 ár. Uppsögnin kom beint í kjölfar þess að Hringbraut greindi frá því að  Birgi Gunnarsyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Reykjalundar til 12 ára, hefði verið sagt upp fyrirvaralaust 30. september. Birgir var leiddur út úr skrifstofum Reykjalundar af stjórnarformanni og varaformanni stjórnar SÍBS sama dag og hann skrifaði undir starfsmannalokasamning. Birgir og Magnús náðu vel saman. Samkvæmt heimildum Hringbrautar ásælist stjórn SÍBS leigutekjur sem Reykjalundur hefur af húsnæðinu en SÍBS leggur ekki fjármuni til rekstursins.

Vísir greindi frá uppsögn Magnúsar í gær sem og staðfesti frétt Hringbrautar að ástandið á svæðinu væri þrungið spennu og starfsmenn væru óöryggir. Þannig hafði Vísir eftir starfsmanni að ástandið væri óbærilegt.

SÍBS sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem frétt Hringbrautar var vísað á bug. Til stóð að Magnús myndi láta af störfum á næstu mánuðum. Stjórnin taldi hins vegar rétt að segja honum upp störfum í gær.

Fréttablaðið greinir svo frá því, eins og áður segir, að kallað hafi verið til prest. Sveinn Guðmundsson stjórnarformaður samtakanna SÍBS segir í samtali við Fréttablaðið:

„Hann var þarna sem sálgætir. Það var ákveðið að kalla til einstakling sem hefur mikla reynslu í því að ræða við fólk þegar upp koma atvik, sem setja sorg í fólk.“

Þá sögðu viðmælendur blaðsins sem þekkja vel til innan Reykjalundar að ástandið væri viðkvæmt og starfsfólki liði illa. Þá verður fundað með starfsmönnum í dag.  

Hringbraut greindi enn fremur frá að ástæðu uppsagnarinnar mætti rekja til þess að árið 2013 ákvað stjórn SÍBS að leigutekjur af húsnæði Reykjalundar skildu renna beint til félagsins en ekki til rekstrar Reykjalundar. Fjármagnið vegna leigutekna er um 30 milljónir árlega. Að sögn heimildarmanna barðist Birgir hart gegn því að umræddir fjármunir yrðu teknir úr rekstri Reykjalundar enda ljóst að slíkur niðurskurður myndi fyrst og fremst bitna á sjúklingum og starfsfólki.

Birgir hafði betur í baráttunni en með skipan nýs forstjóra stendur ekkert í vegi stjórnar SÍBS að taka þessar dýrmætu 30 milljónir króna sem áður fóru til Reykjalundar og færa þær yfir í rekstur SÍBS, þar sem samþykkt stjórnar liggur fyrir. Þá segja heimildarmenn Hringbrautar að stjórn SÍBS sögð að reyna ítrekað að hafa áhrif á ákvörðunartöku þegar kemur að daglegum rekstri Reykjalundar. Þess má geta að SÍBS leggur enga fjármuni í daglegan rekstur Reykjalundar heldur sér íslenska ríkið alfarið um að fjármagna starfsemina sem þar fer fram.