Öryggi á sjó mest hjá íslendingum

þriðji og síðasti þátturinn um samgönguöryggi beinir sjónum okkar að öryggi sjófarenda. Öryggismál á sjó hafa tekið stórstígum framförum undanfarna áratugi og enn er unnið að bótum í þeim efnum og umhverfisvernd er þar líka undir.

Fáein ár eru síðan Flugmálastjórn, Umferðarstofa og nokkur verkefni Vegagerðarinnar sameinuðust undir einum hatti Samgöngustofu – auk Siglingamálastofnunar. Þórólfur Árnason, forstjóri Samgöngustofu segir helstu verkefnin tengd öruggum siglingum. Lág tíðni slysa á fiskiskipum og í útgerð er sérstaða íslands á erlendum vettvangi, segir hann. 

 

Svava Kristinsdóttir starfar sem fulltrúi á þjónustusviði Samgöngustofu og hún segir meiri eftirspurn núna eftir útgáfa skírteina fyrir þá sem vilja sigla eigin skemmtibátum.

Jón Bernódusson hefur langa reynslu af málaflokknum. Jón er fagstjóri rannsóknar, þróunar og greiningar á Samhæfingarsviði Samgöngustofu.  Hann bendir á að Samgöngustofa hefur staðið fyrir rannsóknum á umhverfisvænum orkugjöfum sem eykur orkuöryggi. Megináherslan hefur verið lögð á ræktun á repju, en repjan er orkujurt sem gefur af sér olíu sem er hægt að nota á skip með auðveldum hætti.

Einar Örn Héðinsson, framkvæmdastjóri farsviðs og Geir Þór Geirsson, deildarstjóri skipaeftirlits og leyfisveitinga koma einnig fram í þættinum. 

Þriðji og síðasti þátturinn um Samgöngustofu er á dagskrá í kvöld. Fjallað er um öryggi á sjó. Þátturinn er í umsjón Lindu Blöndal og Friðþjófs Helgasonar tökumanns.