Nýr herjólfur formlega nefndur og afhentur vestmannaeyingum

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, voru við móttökuathöfn í Friðarhöfninnu í Vestmannaeyjum í dag þar sem nýr Herjólfur var afhentur Vestmannaeyingum. Hann kostaði nærri fjóra og hálfan milljarð króna. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

„Við athöfnina nefndi Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, formlega nýjan Herjólf og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flutti ávarp þar sem hann afhenti Vestmannaeyingum hina nýju ferju.

Í ræðu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kom fram að með nýjum Herjólfi standi vonir til að samgöngur verði betri og þjóni þörfum Vestmannaeyinga.

Þá eru orkuskipti eitt af áhersluatriðum ríkisstjórnarinnar. Því hefði ekkert annað komið til greina en að ný ferja gengi fyrir umhverfisvænni orku.

Þá sagði Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra í samtali við RÚV.

„Þetta er allt öðruvísi skip. Hannað til að geta rist miklu grynnra heldur en gamli Herjólfur bara 2,8 metra til þess að geta komist inn í Landeyjahöfn, það er hönnunin. Svona þéttari saman. Mjög rúmgóður að innan og huggulegur. En síðan er það aðalatriðið að hann gengur fyrir rafmagni, endurnýjanlegri orku og er svona mjög stórt skref, við erum kannski að brjóta blað í orkuskiptum í samgöngum með því að koma þessu svona fyrir.“

Þá fluttu forstjóri Vegagerðarinnar, formaður bæjarráðs og fulltrúi Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ávörp og prestur Landakirkju blessaði skipið.“