Nota kvíabryggjufanga í almenna vinnu

Alþýðusambandi Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna vinnu fanga á Kvíabryggju þar sem ASÍ hafi ítrekað borist ábendingar vegna vinnu fanga af Kvíabryggju á almennum vinnumarkaði. Er þar nefnd vinna við fjölbýli sem verið er að gera upp fyrir langtíma leigu, uppgerð sveitabýlis fyrir gistiþjónustu og vinnu hjá flutningafyrirtæki.

„ASÍ telur það fyrirkomulag sem gilt hefur um störf fanga utan fangelsisins á Kvíabryggju og vakin hefur verið athygli á klárt brot á lögum nr. 15/2016 um fullnustu refsinga og hvetur fangelsið og fangelsismálayfirvöld til þess að koma þessum málum í löglegt og rétt horf. Alþýðusambandið áskilur sér allan rétt til þess að fylgja þessum athugasemdum eftir gagnvart þeim yfirvöldum sem í hlut eiga”.

Í tilkynningunni segir að ASÍ taki skýrt fram að ekki séu gerðar athugasemdir við betrunarvinnu þegar hún fari hún fram innan fangelsis og í einhverjum tilfellum utan fangelsis eins og kemur fram í viðeigandi lögum.  

Í yfirlýsingunni segir að í svari forstöðumanns fangelsins Kvíabryggju við fyrirspurn ASÍ hafi verið staðfest að fangar sinni störfum, m.a. iðnaðarmanna á almennum vinnumarkaði.

„Jafnframt kemur fram að útseld vinna þeirra er 800 krónur á tímann og að þeir fá greiddar 400 krónur á tímann og ávinna sér engin réttindi önnur. Hér er mikilvægt að árétta að betrunarvinnu við almenn störf á vinnumarkaði er hvorki ætlað vera í samkeppni við annað launafólk eða fela í sér félagsleg undirboð og réttindasviptingu fyrir þá sem störfin vinni”.

ASÍ bendir á að lögin og greinargerðin sem vísað er til í þessu máli geri ráð fyrir því að fangi geti unnið utan fangelsis og að hann fái þá fyrir það skattskyld laun.