Norðmenn enn með forystu

Norðmenn voru enn með forystuna í verðlaunakeppninni eftir 8. keppnisdag á vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang með 10 gullverðlaun og 27 verðlaun samtals.

Nú rétt áðan bættist enn eitt gullið við safn Norðmanna þegar voldugt yfirvaraskegg Norðmannssins Roberts Johanssons virtist ljá honum svifið sem dugði til sigurs í skíðastökkinu.

Norsku gullmedalíurnar á leikunum eru því orðnar 11.