Mynd dagsins: „leyfðum honum að prófa lögguhúfu. þekkir þú eigandann?“

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum birti mynd dagsins á Hringbraut. Þar óskar lögreglan eftir aðstoð. Í texta við myndina segir:

„Fíkniefnalögregluhundurinn Rex hefur hafið störf. Nei grín. Þessi fallegi Pommi er í heimsókn hjá okkur og saknar eiganda síns. Til að hafa ofan af voffa þá gáfum við honum smá nasl og leyfðum honum að prófa lögguhúfu. Þekkir þú eigandann?“