Miðstjórn así lýsir yfir vonbrigðum með skattatillögur

Miðstjórn ASÍ hefur sent frá sér ályktun vegna fyrirhugaðra breytinga á skattkerfinu sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnti í gær. Í ályktuninni lýsir stjórnin yfir verulegum vonbrigðum með tillögurnar.

„Tillögurnar mæta engan veginn kröfum verkalýðshreyfingarinnar um tekjujöfnunar- og tekjuöflunarhlutverk skattkerfisins og geta að óbreyttu ekki orðið grundvöllur sátta í samfélaginu,“ segir í ályktuninni.

Tillögurnar eru sagðar byggja á því að létta skattbyrði allra tekjuhópa og auka ráðstöfunartekjur láglaunafólks og bankastjóra um sömu krónutölu. „Stór hluti af því „svigrúmi“ sem fjármálaráðherra telur til skattalækkana er þannig nýtt til að lækka skatta á tekjuhæstu hópana þvert gegn því sem kallað er eftir í samfélaginu.“

Launafólk borgi ekki skattalækkunina sjálft

Í ályktuninni segir einnig að engin áform sé að sjá um að auka eigi stuðning við barnafjölskyldur og endurreisa vaxtabótakerfið. Stjórnin telur fulla ástæðu til að óttast að stór hluti skattalækkunarinnar verði tekinn aftur með enn frekari tekjuskerðingum í barna- og vaxtabótakerfinu.

„Stjórnvöld virðast ekki ætla að styrkja aðra tekjustofna ríkisins samhliða breytingunni s.s. með upptöku hátekjuskatts, auðlegðarskatti, hækkun fjármagnstekjuskatts eða afgjaldi fyrir auðlindanýtingu. Breytingin mun því þýða að minna verður til ráðstöfunar til brýnna úrbóta, t.d. í velferðarkerfinu og í samgöngumálum.

Launafólk mun aldrei sætta sig við skattkerfisbreytingar sem það borgar sjálft fyrir með veikara velferðarkerfi, verri innviðum og auknum nefsköttum. Slík stefna hefur verið viðhöfð um langt skeið og kemur alltaf verst niður á þeim tekjulægstu. Launafólk vill sanngjarnt skattkerfi sem eykur jöfnuð og fjármagnar velferð,“ segir að lokum í ályktuninni.