Meta hvort vísa eigi deilu til ríkissáttasemjara

Viðræðunefnd Starfsgreinasambandsins mun meta á fundi á morgun hvort kjaradeilu sambandsins við Samtök atvinnulífsins verði vísað til ríkissáttasemjara. Samninganefnd SGS fundaði fyrir helgi um stöðuna í kjaraviðræðum og samþykkti þar einróma umboð til handa viðræðunefnd.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sambandinu. Þar segir: „Á fundinum var samþykkt einróma umboð til handa viðræðunefnd SGS þess efnis að vísa kjaradeilunni við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara á næstu dögum ef nefndin telur ástæðu til.

„Það eru væntingar um að fram komi hugmyndir eða tillögur í framhaldi af viðræðum forystu ASÍ og stjórnvalda á morgun, þriðjudag. Viðræðunefnd SGS hefur verið boðuð til fundar síðdegis þann dag,“ segir einnig í tilkynningunni.