Mast vill eftirlitsmann með velferð gæludýra

Matvælastofnun (MAST) óskar nú eftir að ráða eftirlitsmann með velferð og aðbúnaði gæludýra í Suðvesturumdæmi með aðsetur í Hafnarfirði.

Um er að ræða fullt eftirlitsstarf og mun eftirlitsmaður sinna fyrst og fremst eftirliti með gæludýrahaldi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og í Kjós.

Eftirlitsmaður tekur einnig á móti og vinnur úr ábendingum um illa meðferð gæludýra.