Kristín: „sjálfstæðisflokkurinn ætti að hætta eltingaleik við mestu popúlistana“

Í leiðara Fréttablaðsins í dag fjallar Kristín Þorsteinsdóttir, útgefandi blaðsins og fyrrverandi ritstjóri þess, um vandræði Sjálfstæðisflokksins. Fylgi flokksins hefur aldrei verið lægra en nú.

„Sjálfstæðisflokkurinn á undir högg að sækja í skoðanakönnunum. Flokkurinn sem lengi vel gat gengið að þriðja hverju atkvæði vísu, mælist nú með tæplega tuttugu prósenta fylgi,“ segir Kristín.

Hún segir stöðuna þó ekki koma á óvart. „Þróunin alþjóðlega hefur verið sú að hefðbundnir kjölfestuflokkar geta ekki lengur gengið að fylgi sínu vísu. Efnahagshrunið 2008 kom flokknum illa, og hefur hann æ síðan verið í tilvistarkreppu.“

Kristín rekur hvernig strax í kjölfarið hafi ný kynslóð forystumanna í flokknum viljað halla sér að Evrópusambandinu og taka upp evru. „Núverandi formaður skrifaði blaðagreinar þeirri skoðun til stuðnings. En harðlínuöfl í flokknum hleyptu loftinu fljótlega úr þeirri blöðru. Hópur flokksmanna taldi sig í framhaldinu ekki eiga samleið með flokknum og stofnaði Viðreisn, sveit frjálslyndra og alþjóðasinnaðra fyrrverandi Sjálfstæðismanna.“

„Nú er staðan sú að Sjálfstæðisflokkurinn virðist vera milli steins og sleggju. Skynsamlega þenkjandi hægri fólk á kost í Viðreisn. Íhaldssamari og þjóðernissinnaðri kjósendur hafa Miðflokkinn. Andlegur leiðtogi og klappstýra síðarnefnda hópsins er fyrrverandi formaðurinn og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann spýr nú eldi og brennisteini á síðum blaðsins,“ segir hún og á þar vitanlega við Davíð Oddsson.

Kristín veltir því fyrir sér hvort vandi Sjálfstæðisflokksins felist í því að hann hafi leitast við að þóknast öllum og sigla lygnan sjó. „Úr verða hvorki né stjórnmál. Sjaldgæft er að heyra flokksmenn eða kjörna fulltrúa færa hugmyndafræðileg rök fyrir máli sínu. Að nálgast mál frá markaðslegum forsendum eða hægri stefnu á ekki að vera feimnismál. Þvert á móti.“

Flokkur á krossgötum

„Sjálfstæðisflokkurinn stendur á krossgötum,“ segir Kristín. „Valið virðist standa milli þess að halla sér í átt til íhaldssamari gilda, og sækja á mið Miðflokksins og Framsóknar, eða að tala fyrir alþjóðlegum gildum og frelsi í viðskiptum. Umræðan um Orkupakkamálið gæti markað tímamót. Forysta flokksins hefur almennt staðið vörð um Evrópusamstarfið og staðið uppi í hárinu á íhaldssamari og popúlískari flokkssystkinum.“

Hún segir þetta mögulega vera leiðarljós um hvernig Sjálfstæðisflokkurinn geti markað sér sérstöðu í breyttu pólitísku umhverfi. „Látið popúlíska einangrunarsinna lönd og leið, en sótt á hinn vænginn. Talað af sannfæringu um frelsi í viðskiptum og alþjóðahyggju. Með því má kannski ná Viðreisnarkjósendum aftur heim. Nú er reynt að láta sverfa til stáls með undirskriftasöfnun innan Sjálfstæðisflokksins þar sem krafist er almennrar kosningar um afstöðu flokksmanna til þriðja Orkupakkans.“

„Sjálfstæðisflokkurinn ætti að hugsa til lengri tíma og hætta eltingaleik við mestu popúlistana hverju sinni,“ segir Kristín að lokum og vísar þar til Miðflokksins.