Kolbrún: „í huganum sjá þeir þjóðina afvelta á fylliríi og æsku landsins farna í hundana“

„Of margir stjórnmálamenn hér á landi lifa í þeim misskilningi að það sé sérstakt hlutverk þeirra að hafa gætur á almenningi og setja honum alls kyns skorður. Þessi hópur stjórnmálamanna hefur takmarkaða trú á skynsemi almennings en því meiri trú á öllum mögulegum höftum.“

Á þessum orðum hefst leiðari Kolbrúnar Bergþórsdóttur í Fréttablaðinu í dag.

Hún nefnir dæmi um viðhorf þessa hóps til sölu á bjór og léttvíni í matvöruverslunum. „[F]orsjárhyggju-stjórnmálamennirnir mega ekki til þess hugsa að sú sjálfsagða þjónusta standi landsmönnum til boða. Í huganum sjá þeir þjóðina afvelta á fylliríi og æsku landsins farna í hundana.“

„Hafa landsmenn ekki heyrt þetta áður?“ veltir Kolbrún fyrir sér. „Ójú, það hafa þeir, því þetta er alveg sama svartnættisrausið sem var endurtekið í tíma og ótíma þegar umræðan um að leyfa bjórsölu hér á landi stóð sem hæst. Æskan átti að leiðast á glapstigu við það eitt að aðgangur að bjór yrði gerður auðveldur, vinnustundir áttu að glatast vegna dagdrykkju hins vinnandi manns og helgarfylliríin áttu að verða enn ógnvænlegri en áður. Ekkert af þessu gekk eftir.“

Hún segir það hvimleitt þegar því er haldið fram að það sem tíðkist erlendis geti engan veginn hentað hér. „Rökin eru aldrei skýr, það eina sem er fullljóst er að einstaklingum er ekki treyst og því þurfi valdið að koma að ofan. Þannig er jafnvel talið stórhættulegt hér á landi að fólk geti keypt sér rauðvínsflösku í sömu verslun og það kaupir kótiletturnar eða mjólkina. Þetta gera Íslendingar þó í utanlandsferðum og þykir ósköp þægilegt. Ekki nema von að sífellt fleiri landsmenn spyrji af hverju þeir geti ekki gert þetta sama hér á landi.“

Kolbrún vísar til þess að nýleg könnun Maskínu sýni að fleiri séu hlynnt sölu bjórs og létt­víns í mat­vöru­verslunum en and­víg. „Aldrei hafa fleiri verið hlynnt sölu á bjór í mat­vöru­verslunum en einmitt nú. Munurinn er svo sem ekki ýkja mikill. Rúm­lega 44 prósent eru hlynnt sölu létt­víns í mat­vöru­verslunum og um 42 prósent and­víg. Um 45 prósent eru hlynnt sölu á bjór og 41 prósent er and­vígt.“

„Stórum hópi landsmanna finnst greinilega kominn tími til að hafna forsjárhyggjuhugsuninni sem hér hefur verið við lýði í þessum málum í alltof langan tíma. Andstæðingar þess að heimilt verði að selja vín og bjór í almennum verslunum hafa óspart vísað til þess að vilji þjóðarinnar sé skýr, hún vilji hafa þessi höft,“ bætir hún við.

Að lokum segir Kolbrún skoðanakönnun Maskínu sýna að vilji þjóðarinnar sé nokkur annar en andstæðingarnir hafa talið hann vera. „Könnunin sýnir líka að yngra fólk er líklegra en þeir sem eru sextugir og eldri til að vera fylgjandi því að bjór og léttvín verði til sölu í matvöruverslunum. Þetta unga fólk vill búa í opnu þjóðfélagi, án hafta, og kemur vitanlega ekki auga á rökin fyrir því að geta ekki gripið með sér rauðvínsflösku eða bjórkippu um leið og það kaupir í matinn. Slíkt frelsi býður engri hættu heim. Það er kominn tími til að stjórnmálamenn vippi sér yfir í nútímann.“