Keyrðu um og stálu gaskútum - lögreglan leitar enn mannana

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út á Álftanes um eitt leytið í nótt. Tilkynnt var um menn sem fóru á milli húsagarða þar og stálu gaskútum af grillum. Lögreglan hóf strax leit að bifreið mannana, en sú leit skilaði ekki árangri og leitar lögreglan enn mannana.

Þá var tilkynnt um þjófnað á ferðatösku við hótel í miðbæ Reykjavíkur. Erlendur ferðamaður var að bera hluta af farangri sínum inn á hótelið þegar þjófurinn greip eina tösku. Atvikið náðist í myndavélakerfi hótelsins og leitar lögreglan mannsins.