Jón og sjöfn með nýjan heimilisþátt

Þau Jón G. Hauksson og Sjöfn Þórðardóttir byrja með nýjan þátt á Hringbraut í kvöld sem nefnist Fasteignir og heimili. Þátturinn byggir á þættinum Heimilið sem hefur verið á dagskrá Hringbrautar undanfarin ár. Ætlunin er að fjalla um fasteignamarkaðinn á breiðum grunni –sem og um allt sem viðkemur heimilum. Það er af nógu að taka. Gestir þeirra í kvöld verða Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjórui Heimavalla, Ingólfur Gissurarson, fasteignasölunni Valhöll, Eva Dögg Rúnarsdóttir, markaðsstjóri sem fjallar um eiturefnalausan lífsstíl á heimilum, Erna Karla Guðjónsdóttir, svæðisstjóri Regus í Höfðatorgi en þar er þátturinn tekinn upp, og Einar Sveinn Magnússon, verslunarstjóri í Pfaff.