Jóhannes haukur að slá í gegn á netflix?

Jóhannes Haukur Jóhannesson, leikari hefur haft nóg að gera undanfarin ár á alþjóðlegum vettvangi. Eftir að hann lék hið eftirminnilega illmenni í Svartur á leik, árið 2012 fór Jóhannes að fá hlutverk í alþjóðlegum verkefnum. Flestir muna eftir honum í álitlegu hlutverki í Game of Thrones, en í kjölfarið hafa fylgt lítil og stór hlutverk í fjölda verkefna um allan heim.

24. ágúst næstkomandi frumsýnir Netflix þáttaröðina The Innocents. Þar fer Jóhannes með burðarhlutverk, sem Norðmaðurinn Steinar. Dómar um þáttaröðina eru þegar teknir að birtast og fær Jóhannes sérstakt lof fyrir leik sinn.