Jakob: „hrikalegri skerðingu verður að linna“

„Þannig tel ég hafið langt yfir allan vafa að skerðing lífeyris almannatrygginga stórskaði ímynd lífeyrissjóðakerfisins.“ Þetta sagði Jakob Tryggvason, stjórnarformaður Birtu á ársfundi lífeyrissjóðsins þar sem hann ræddi um ímyndunarvanda lífeyrissjóðskerfisins. Að hans mati eru nokkrar ástæður fyrir að ímynd kerfisins sé gölluð. Tryggvi sagði:

„Óánægjan kraumar og nú heyrist spurt aftur og aftur: Hvers vegna borgum við yfirleitt í lífeyrissjóði þegar ríkið refsar okkur með því að hirða af okkur lífeyrinn frá Tryggingastofnun?“

Þá sagði Jakob að það væri margsannað að þegar lífeyriskerfið var sett á laggir var því alltaf haldið á lofti að greiðslur úr lífeyrissjóðum yrðu til viðbótar lífeyri almannatrygginga. Jakob sagði:

„Dettur einhverjum í hug að lífeyrissjóðir hefðu fengið brautargengi með fögnuði og húrrahrópum ef fylgt hefði sögu að lífeyrir úr þeim kostaði þessa hrikalegu skerðingu í almannatryggingakerfinu sem þúsundir manna upplifa nú á eigin skinni og buddu?“

Bætti Jakob við að þessu yrði að linna og fagnaðarefni væri að Landssamtök lífeyrissjóða tæki nú undir með þeim sem krefjast breytinga. Jakob sagði að lokum:

„Heildarsamtök atvinnulífsins, bakland lífeyrissjóða á almennum markaði, ættu að beita sér fast og ákveðið gagnvart stjórnvöldum í tengslum við kjarasamningana nú til að skerðingarnar verði í það minnsta mildaðar verulega strax. Það á sérlega vel við núna því í maímánuði næstkomandi verður þess minnst að 50 ár eru liðin frá því skrifað var undir kjarasamning með ákvæði um skylduaðild að lífeyrissjóðum.“