Íslensk kvikmynd valin á cannes kvikmyndahátíðina

Hvítur, hvítur dagur, nýjasta kvikmynd leikstjórans og handritshöfundarins Hlyns Pálmasonar, er ein af sjö myndum sem valdar hafa verið til keppni á Critics‘ Week, einni af hliðardagskrám hinnar virtu Cannes kvikmyndahátíðar, þar sem hún verður heimsfrumsýnd. Cannes kvikmyndahátíðin, sem fer fram frá 14. – 25. maí, er ein sú stærsta í heiminum og því um mikinn heiður að ræða.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Kvikmyndamiðstöð Íslands.

Hvítur, hvítur dagur segir frá Ingimundi lögreglustjóra, sem hefur verið í starfsleyfi frá því að eiginkona hans lést óvænt af slysförum. Í sorginni einbeitir hann sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu, þar til athygli hans beinist að manni sem hann grunar að hafi átt í ástarsambandi við konu sína. Fljótlega breytist grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitnar einnig á þeim sem standa honum næst. Þetta er saga um sorg, hefnd og skilyrðislausa ást.

Tökur á myndinni fóru fram á Hornafirði, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og í Oddsskarði.

\"\"

Hlynur Pálmason

Hlynur Pálmason leikstýrir og skrifar handritið að Hvítum, hvítum degi. Framleiðandi myndarinnar er Anton Máni Svansson fyrir Join Motion Pictures og einn af yfirframleiðendum er Guðmundur Arnar Guðmundsson, en myndin er íslensk/dönsk/sænsk samframleiðsla. Meðframleiðendur eru Katrin Pors, Mikkel Jersin og Eva Jakobsen fyrir Snowglobe, Nima Yousefi fyrir Hobab og Anthony Muir fyrir Film i Väst.

Með aðalhlutverk fara Ingvar E. Sigurðsson og Ída Mekkín Hlynsdóttir. Stjórn kvikmyndatöku er í höndum Mariu von Hausswolff og Julius Krebs Damsbo sér um klippingu myndarinnar. Hljóðhönnuður myndarinnar er Lars Halvorsen, leikmyndahönnuður Hulda Helgadóttir og tónlist er eftir Edmund Finnis.

Hvítur, hvítur dagur er önnur kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd á eftir hinni dansk/íslensku Vetrarbæðrum sem fór sigurför um heiminn í kjölfar heimsfrumsýningar í aðalkeppni Locarno kvikmyndahátíðarinnar í Sviss í ágúst 2017. Myndin hefur unnið til yfir þrjátíu alþjóðlegra verðlauna, þar af níu Robert verðlauna og tvennra Bodil verðlauna í Danmörku. Hlynur Pálmason vann einnig til Dreyer verðlaunanna á síðasta ári fyrir framúrskarandi listræna hæfni.

Fimmta íslenska kvikmyndin í Critics’ Week

Fjórar íslenskar myndir hafa áður tekið þátt í Critics\ Week