Ísland dýrasta land evrópu

Verðlag á Íslandi var 84 prósent hærra en að meðaltali í aðildarríkjum ESB árið 2017. Ferðamenn sem koma hingað til lands greiða því næstum tvöfalt hærra verð fyrir vörur og þjónustu en að meðaltali innan Evrópusambandsins. Ísland er um þessar mundir dýrasta land Evrópu og að öllum líkindum einn dýrasti áfangastaður heims fyrir ferðamenn. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Íslandsbanka.

Í tilkynningunni segir að verðlag á algengum vörum og þjónustu sem ferðamenn sækjast í hafi hækkað langt umfram verðlag í Evrópu undanfarinn áratug. Sem dæmi megi nefna að verð áfengra drykkja sé í dag hátt í þrefalt hærra en að meðaltali í ESB.

Þetta er á meðal þess sem mun koma fram í nýrri skýrslu Íslandsbanka um ferðaþjónustuna á Íslandi. Skýrslan verður kynnt í heild sinni á fundi á fimmtudaginn næstkomandi, á Hilton Nordica hótelinu klukkan 8:30.

Uppfært 15:31: Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, lýsir því yfir á Twitter aðgangi sínum að Ísland hafi verið dýrasta land Evrópu árið 2017, en síðan þá hafi krónan veikst um ca. 13 prósent gagnvart Evru, sem eitt og sér myndi senda Ísland niður í 4. sæti nú.

\"\"