Deyfður með koníaki og saumaður með nál og tvinna – læknir ekki starfað á staðnum í áratug

Óöryggi íbúa á Borgarfirði eystra vegna heilbrigðisþjónustu er algjört og kalla þeir því eftir samstarfi um viðbragðsþjónustu utan spítala. Læknir hefur ekki verið starfandi í þorpinu í áratug og þegar alvarleg tilvik koma upp á svæðinu þarf sjúkrabíll frá Egilsstöðum að keyra í klukkutíma yfir fjallveg.

Fjallað er um málið í nýjasta tölublaði Mannlífs.

Í húsnæði sem notað er sem heilsugæsla skortir lágmarks aðföng til þess að sinna sjúklingum. „Það er ekkert til þarna. Það slasaðist einstaklingur fyrir nokkru. Það var læknir á staðnum þegar slysið varð en hann var ekki með læknisáhöld á sér, enda á frívakt. Það fannst ekkert til að sauma manninn með en fyrir rest gróf læknirinn upp einhvern grófan tvinna og nál. Það var heldur ekkert í húsinu til að deyfa manninn með nema koníak, sem einn úr hópnum hafði meðferðis,“ segir ónefndur íbúi á Borgarfirði eystra.

Heimamenn á svæðinu hafa þurft að mynda sérstakan viðbragðshóp vettvangsliða til að bregðast við neyðartilfellum og veita fyrstu hjálp á meðan beðið er eftir sjúkrabíl. „Við erum búin að vera með þennan viðbragðshóp í gangi síðan 2012. Við menntuðum hópinn hjá Sjúkraflutningaskólanum en þetta var leið okkar slökkviliðsins og fólksins á staðnum til að undirbúa vettvangsliðana fyrir hver þau áföll sem þeir gætu þurft að takast á við sjálfir, enda er oft ófært eða seinfarið yfir á Borgarfjörð [frá Egilsstöðum]. Niðurstaðan varð sú að kosta námskeiðin úr sjóðum Brunavarna Austurlands,“ segir Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna á Austurlandi.

Á dögunum var haldinn íbúafundur um utanspítalaþjónustu í Borgarfirði eystra. Baldur segir íbúa vilja skilgreina betur hlutverk vettvangsliða, ekki síst eftir að tvö áföll dundu yfir í þorpinu með stuttu millibili. Í báðum tilfellum hnigu einstaklingar niður meðvitundarlausir og þurftu á endurlífgun að halda. „Þess vegna var samfélagið einfaldlega að kalla eftir þessum íbúafundi, til að fara vel yfir þessi mál.“

Kemur ekkert í staðinn

Baldur segir að utanspítalaþjónusta á borð við björgunarsveitir, slökkvilið og vettvangsliða sé óskilgreind innan kerfisins. „Við kölluðum eftir samstarfi um að skilgreina svona hópa og líka eftir tillögum að því hvernig ætti að mennta þetta fólk. Ég sat nýverið þing Slysavarnarfélagsins Landsbjargar þar sem einnig var verið að fjalla um þessi mál. Allir eru að kalla eftir því að það verði mótuð heildstæð stefna í utanspítalaþjónustu. Það er verið að fækka sjúkrabílum í landinu og ekkert kemur í staðinn, það er engin stefna.“

Í svipaðan streng tekur Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Landsbjargar. „Við höfum ítrekað kallað eftir því við heilbrigðisráðuneytið að mörkuð verði stefna um samræmda utanspítalaþjónustu um allt land. Þar með talið sjúkraflutninga og aðkomu þessara hópa sem hafa verið kallaðir vettvangsliðar. Staðreyndin er sú að það er engin samræming á milli heilbrigðisumdæma þegar kemur að þessu.“

„Við höfum verið að kalla eftir því að það verði lögð vinna í að samræma þessa hluti. Við höfum fundað með ráðuneytinu snemma á þessu ári og því síðasta og í raun allt frá árinu 2015 um þessi mál,“ bætir Jón við og segir engar tillögur um úrlausnir hafa borist úr ráðuneytinu.

Mannlíf sendi heilbrigðisráðuneytinu fyrirspurn um stöðu mála. Í svari ráðuneytisins kemur fram að utanspítalaþjónusta sé eitt af fleiri tilteknum verkefnum sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hafi sett í forgang á þessu ári og því næsta.

„Áhersla verður lögð á heildstætt skipulag allra sjúkraflutninga hvort sem þeir fara fram á landi eða með flugi. Í samræmi við þessar áherslur er hafinn undirbúningur í ráðuneytinu að heildarstefnumótun í málaflokknum þar sem hlutverk hvers og eins viðbragðsaðila verður skilgreint, ábyrgð, staða í kerfinu, menntunarkröfur og fleira. Ráðherra hefur hitt fulltrúa Landsbjargar á fundi, þar sem þeir síðarnefndu hafa lýst sínum sjónarmiðum,“ segir í svarinu.