Höskuldur með 71 milljón í árslaun

Laun og árangurstengdar greiðslur til Höskuldar Ólafssonar, bankastjóra Arion banka námu alls 71,2 milljónum króna í fyrra og hækkuðu um 5,9 milljónir, eða ríflega niu prósent, að því er Markaðurinn í Fréttablaðinu les upp úr nýbirtum ársreikningi bankans.

Þar kemur jafnframt fram að laun og tengdar greiðslur til Birnu Einarsdóttur, bankastjóra íslandsbanka voru 58 milljónir króna á síðasta ári og drógust saman um tæpar 3 milljónir króna á milli ára. Þá námu laun Lilju Bjarkar Einarsdóttur, bankastjóra Landsbankans 27 milljónum á nýliðnu ári, en þess verður þó að geta að hún ekki störf þar fyrr en á útmánuðum i fyrra.