Hljóta 750 milljóna króna styrk

Íslenskt rannsóknarverkefni hefur hlotið rúmlega 750 milljóna króna styrk frá Horizon 2020 áætlun Evrópusambandsins. Verkefnið, sem ber heitið RESTORE, snýr að því að þróa tækni til að rækta brjósk fyrir hnéliði. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík.

Rannsóknarverkefnið gengur út á að þróa nýja meðferð við skemmdum í liðbrjóski í hnjám með því að beita vefjaverkfræðilegum aðferðum. Um samvinnuverkefni nokkurra þjóða er að ræða þar sem íslenskir vísindamenn munu starfa með vísindamönnum frá Portúgal, Þýskalandi, Finnlandi og Ítalíu að rannsókninni.

Dr. Paolo Gargiulo, dósent við tækni- og verkfræðideild og forstöðumaður Taugalífeðlisfræðistofnunar Háskólans í Reykjavík er verkefnastjóri íslenska hluta rannsóknaverkefnisins. Hlutverk íslenska teymisins verður að gera gagnagrunn út frá segulómun og tölvusneiðmyndum, sem verður notaður til að búa til leiðbeiningar um hvernig má haga meðferð í samræmi við þarfir hvers og eins sjúklings.

Markmiðið með RESTORE verkefninu er að þróa meðferð þar sem búinn verður til brjóskvefur sem hægt verður að koma fyrir í sködduðu hné í stað brjósksins sem er skemmt. „Brjóskið í hnénu hefur mjög takmarkaða viðgerðarhæfileika, ólíkt öðrum vefjum líkamans eins og beinvef og vöðvum. Aðgerðir sem eru framkvæmdar á sjúkrahúsum í dag fela í sér að flytja brjósk frá öðrum stað í líkamanum í skemmda svæðið eða að bora inn í beinið með það að markmiði að fá frumur í beinmergnum til að skríða inn í sárið og hefja viðgerð. Hvorug þessara leiða gefa nægilegan góðan árangur fyrir sjúklinginn og þess vegna þarf að finna aðrar leiðir til að laga skemmdir í brjóski“, segir Dr. Paolo.

Styrkurinn til verkefnisins, sem jafngildir um 5,5 milljónum evra, verður greiddur yfir fjögurra ára tímabil. Horizon 2020 áætlun ESB er ætlað að efla rannsóknir í álfunni á árunum 2014-2020.