Herða aðförina gegn almenningi

\"Trúlega er ekki fjarri að segja að ritstjóraskrifstofa Morgunblaðsins sé nokkurs konar viðhengi við Borgartún 35, en í því húsi starfa lobbýistar ríka fólksins\", skrifar Sigurjón M. Egilsson ritstjóri Miðjunnar.

\"Frá báðum stöðum hafa ítrekað komið fullyrðingar um að jafnvel lægst launaðasta fólkið geti hæglega sent Ísland rakleitt til fjandans slái það ekki af kröfum sínum um ögn hærri laun. Í báðum húsum, B35 og í Hádegismóum, vantar ekki hugmyndaflugið.\" Sigurjón bendir á skrifa í Morgunblaðinu í dag þar sem Davíð Oddson skrifi eftirfarandi:   Verk­efnið í kom­andi kjara­samn­ing­um er að verja kjör al­menn­ings með því að koma í veg fyr­ir skell í at­vinnu­líf­inu sam­hliða hækk­andi verðbólgu, sem get­ur hæg­lega gert vart við sig á ný þó að ytri aðstæður hafi tryggt óvenju­lega hag­felld­ar verðbólgu­töl­ur á liðnum árum, þrátt fyr­ir mikl­ar launa­hækk­an­ir.

\"Þvílíkt og annað eins. Davíð, en hvað um svigrúmið til launahækkana?\", spyr Sigurjón í pistli sínum á Miðjunni.