Hagar og olís skuldbinda sig til að selja verslanir

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Haga á Olís með skilyrðum um sölu verslana og bensínstöðva auk þess að FISK Seafood er gert skylt að selja hlut í Högum sem það eignast í viðskiptunum. Upphaflega var skrifað undir kaupsamning 26. apríl 2017 en nú liggur samþykkti Samkeppniseftirlitsins fyrir, rúmu ári síðar.

Samkvæmt tilkynningu frá Högum eru helstu skilyrði samrunans eftirfarandi.

1. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að bjóða sama verð á dagvöru á Olís stöðvum um land allt.

2. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja nýjum endurseljendum eldsneytis, sem eftir því leita, eldsneyti í heildsölu á viðskiptalegum grunni.

3. Aðgengi endurseljenda eldsneytis að birgðarými hjá Olíudreifingu verður tryggt að því marki sem Olís er unnt sem annar eigandi félagsins.

4. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur og fasteign félagsins að Faxafeni 14, þar sem verslun Bónus er starfrækt.

5. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur og fasteignir Olís þjónustustöðvanna við Háaleitisbraut 12 og Vallargrund 3.

6. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur verslana Bónus að Hallveigarstíg 1 og Smiðjuvegi 2.

7. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur Olís verslunarinnar í Stykkishólmi. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur og aðstöðu ÓB stöðvar við Starengi 2, Kirkjustétt 2-5 og Knarrarvog 2 í Reykjavík.

8. Annar seljenda Olís, FISK-Seafood ehf., skuldbindur sig gagnvart Samkeppniseftirlitinu til að selja að hluta þann eignarhlut í Högum sem hann fær afhentan skv. kaupsamningi. Hagar hafa samhliða samþykkt að falla frá sölu- og framsalsbanni sem fram kom í kaupsamningi milli aðila frá 26. apríl 2017

Nánar á

http://www.vb.is/frettir/kaup-haga-olis-samthykkt/149625/