Gústaf er látinn: „var alltaf svo yndislegur“ – einstæð veik móðir í sárum – söfnun hrundið af stað

„Þann 29. september missti Kristín Benediktsdóttir einkason sinn, Gústaf Benedikt, þegar einungis tveir mánuðir voru í 32 ára afmælið hans. Hann kvaddi þennan heim eftir margra ára baráttu við fíknisjúkdóminn sem mörg ungmenni á Íslandi í dag berjast við og þeim fylgikvillum sem þessum sjúkdómi fylgir.“

Þetta segir Atli Rafn vinur fjölskyldunnar. Gústaf hafði lengi barist við að halda sig á beinu brautinni. DV greinir frá söfnuninni. Atli Rafn segir:

„ ... að lokum sá hann ekki lengur ljósið og ákvað að kveðja þetta líf. Móðir hans hefur lagt mikið á sig til að hjálpa honum að berjast við sjúkdóminn og oft sett sín veikindi til hliðar þegar hann þurfti sem mest á hennar stuðning að halda.“

Vinir Gústafs hafa hrundið af stað söfnun fyrir Kristínu, sem er eins og áður segir, hefur tekist á við langvarandi veikindi.Margir minnast síðan Gústaf á samfélagsmiðlum. Iðunn Ásgeirsdóttir segir: „Ég samhryggist innilega. Gústi var alltaf svo yndislegur.“ Þá segir Atli Rafn:

„Við vinahópur hans höfum ákveðið að stofna til styrktarreiknings fyrir hönd móður hans Kristínu sem er einstæð og hefur sjálf lengi barist við langvarandi veikindi. Svo hún geti kvatt ástkæra son sinn án þess að þurfa að hafa áhyggjur af útgjöldum vegna fráfalls hans.“ Atli Rafn segir að lokum:

„Margt smátt gerir eitt stórt.“

Reikningur: 0101 - 26 -011798 Kennitala: 260655- 4189

 Vinsamlegast deilið!